| Sérfræðingar í margskiptum glerjum |
|
|
Margskiptu sjónglerin frá Rodenstock eru einhver þau bestu í heimi. Fyrir þremur árum keyptum við hjá Sjónlínunni þrívíddarmælitæki til þess að sérsmíða margskipt gler frá Rodenstock - ImpressionIST®.
Þetta tæki hefur margsannað sig á þessum tíma og bein tenging við framleiðslustjórnun Rodenstock í Þýskalandi tryggir 100% meðferð á tölvugögnum alla leið. Með sérsmíði á margskiptum glerjum náum við víðasta sjónsviði og breiðasta lestrarsviði sem hægt er að ná fyrir viðkomandi notanda.
Fyrir utan mjög nákvæmar mælingar á höfði, umgjörð og augnstöðu er líka gert ráð fyrir atvinnu og lífstíl viðkomandi. Þannig þarf t.d. atvinnubílstjóri sem fyrst og fremst horfir frá sér allan daginn aðrar áherslur í margskiptum glerjum en t.d. rithöfundur eða þýðandi sem starfa við skriftir og lestur.Með margskiptum glerjum sem eru sérsmíðuð fyrir þig slærð þú margar flugur í einu höggi. Þú færð þér ein gleraugu sem þú getur notað í öllum aðstæðum hins daglega lífs. Þú þarft ekki að taka þau af þér til að lesa eða horfa frá þér og breitt sjónsvið bæði til lesturs og til að horfa frá sér tryggja meiri slökun í öxlum og hálsi við leik og störf.
Það geta ALLIR notað sérsmíðuðu margskiptu glerin frá Rodenstock. Líka þeir sem hingað til hafa ekki talið sig geta notað margskipt gler. Við erum sérfræðingar í margskiptum glerjunum. Hringdu eða komdu við og fáðu ráðgjöf hjá okkur. |










