| Gleraugu fyrir skólabörn |
|
|
Nú er komin rútína á skólahaldið á flestum heimilum og ekki seinna vænna fyrir foreldra að huga að sjónheilsu barna sinna. Það hafa margir komið í heimsókn til okkar undanfarið með börnin sín og látið yfirfara gleraugun. Við hvetjum alla okkar viðskiptavini sem keypt hafa gleraugu á börnin sín hjá okkur að vera dugleg að koma og láta stilla þau og yfirfara. Oft geta ranglega stillt gleraugu valdið vanlíðan við lestur og nám. Fyrir þá sem þurfa að endurnýja gleraugu erum við með mikið úrval af barna- og unglingagleraugum í hæsta gæðaflokki.
|









